Bruno Senna er frændi hins fræga Ayrton Senna frá Brasilíu og verður spennandi að sjá hvernig hann stendur sig. Ayrton sagði alltaf að hann væri efni í gæða ökumann, en mamma hans bannaði honum að keppa lengi vel eftir að Ayrton dó í slysi 1994.
Bruno ekur með nýju liði sem heitir Hispania og er spænskt.
"Liðið gerði góða hluti miðað þann tíma sem var til stefnu. Það unnu allir allan sólahringinn einn daginn við að koma þessu heima og saman. Og vinnan er rétt að byrja. Við vissum ekki að við myndum mæta til Bahrain fyrr á laugardaginn þegar bílarnir voru settir í flug, hálftíma fyrir brottför. ", sagði Bruno í samtali við Autosport.
Hann hefur aldrei keyrt Hispania bílinn sem hefur ekki farið einn æfingahring um braut, fyrr en á föstudag í Bahrain. Bruno segist engar áhyggjur af sínu þekkta nafni.
"Þegar ég keppti fyrst í Formúlu BMW voru sjónvarpsmenn á eftir mér. Ég hef lært á pressuna sem fylgir þessu", sagði Senna.



