Fréttir
08.03.10
Lögmćti McLaren skođađ í Bahrein
Lögmćti McLaren...

Lögmæti afturvængsins á McLaren bílnum verður formlega skoðað í Bahrein af FIA, en ekki fyrirfram eins og gert var ráð fyrir.

Charlie Whiting hjá FIA tafðist og komst ekki í höfuðstöðvar McLaren eins og hann ætlaði. Hann sker endanlega úr um hvort vængurinn er löglegur, en FIA hafði fengið ábendingar um að hann væri eitthvað ekki eftir bókinni.

McLaren menn segja þó að vængurinn sé fullkomlega löglegur og hafa ekki áhyggjur af skoðun FIA. Vængurinn er framúrstefnulegur og Whitmarsh segir að McLaren hafi verið í samskiptum við FIA útaf honum í vetur.