Fréttir
08.03.10
Kubica: Ferrari og Mercedes sterk, óljóst með Renault
Kubica: Ferrari og...

Robert Kubica telur að erfitt verði að meta stöðu Renault fyrr en eftir nokkur mót, enda hafa æfingar gefið misjafna mynd af getu liðanna.

"Það er vandasamt að spá um hve sterkt Renault verður. Við erum á réttri leið. Við höfum ekki notað allan þann búnað sem við ætluðum okkur. Við verðum með nýjugar í yfirbyggingunni fyrir mótið í Bahrain og vonust þá til að geta staðfest mælingar í vindgöngunum", sagði Kubica.

"Það lítur út fyrir að toppliðin verði mjög jöfn og sum hver hafa falið fulla getu á æfingum og verða með nýjungar. Ferrari og Mercedes virðast mjög sterk."

Vitaly Petrov er nýliði sem bíður spenntur eftir fyrsta móti sínu með Renault.

"Fólk spyr mig hvort ég sé nervös, en ég er vanur að keppa og veit hvað skal gjöra. Vitanlega ganga málin öðruvísi fyrir sig í Formúlu 1 og ég enn að læra á bílinn. En mér líður vel og ég get ekki beðið eftir að keppa í Bahrain", sagði Petrov.