Fréttir
08.03.10
Button: Lærdómsríkur vetur með McLaren
Button:...

Heimsmeistarinn Jenson Button hjá McLaren segist hafa lært mikið í vetur, eftir að hann skipti frá Brawn til McLaren.

"Veturinn hefur verið mjög lærdómsríkur og hefur reynst mér sá skóli sem ég vildi. Ég hef lagt mikið á mig til að læra inn á starfsemi liðsins til að við værum í sem bestri stöðu í Bahrain", sagði Button um mótið um næstu helgi.

"Ég hef aldrei kynnst liði sem hefur lagt eins mikið á sig, né hef ég nokkurn tímann varið eins miklum tíma með tæknimönnum og nú. Ég hlakka til að keyra á föstudaginn, vitandi það að ég er meistari. Það fylgir því ábyrgð og heiður og ég ætla ekki að tapa rásnúmeri eitt af bílnum bínum...", sagði Button.