Fréttir
05.03.10
Verður Pedro de la Rosa trojuhesturinn 2010
Verður Pedro de la...

Miðað við æfingar vetrarins gæti Spánverjinn Pedro de la Rosa verið eins og Trojuhestur í hópi topppliðanna. Hann og Kamui Kobayashi áttu góða spretti á æfingum.

"Ég á góðar minningar frá Bahrain. Ég fékk tækifæri með McLaren 2005 í einu móti og náði besta tíma í einstökum hring og æfði svo í tvo daga 2007. En brautinni hefur verið breytt og það mun taka öðruvísi á bílunum en áður", sagði Pedro um fyrsta mótið í Bahrain.

"Það besta við brautina er að það er hægt að taka framúr á henni. Það eru langir beinir kaflar og í framhaldi af þeim beygjur sem þarf að bremsa af hörku í. Það verður góð keppni og mig hlakkar til að keppa. Ég hef virkilega saknað þess."

"Það er erfitt að meta hvaða braut verður góð fyrir okkar bíl og líka hvaða þjónustuáætlanir liðin munu beita í keppni, eftir því hvað aðrir eru að gera. Þar sem ekki er leyft að fylla á bensín í mótum, þá gæti útkoman orðið fróðlegri en ella. Okkur gekk vel á æfingum og ég er því bjartsýnn á gott gengi og er búinn að læra mikið. Ég get ekki beðið...", sagði de la Rosa sem beið lengi eftir færi hjá McLaren en hann var þar varaökumaður í mörg herrans ár og klæjaði í hendur og fætur fyrir vikið. Vildi bara keppa.